Vöruvernd
Spornaðu gegn þjófnaði og vörurýrnun
Securitas hefur áratugareynslu af vöruvernd í verslunum. Því miður hefur þörf á vöruvernd aukist ár frá ári.
Leitaðu til sérfræðinga Securitas sem veita ráðgjöf um aukið öryggi og vöruvernd í þinni verslun.
Þjófnaður og vörurýrnun
Securitas býður víðtæka vöruverndarlínu fyrir verslanir og fyrirtæki. Vöruverndarhlið frá Securitas hafa marg sannað gildi sitt. Securitas býður lausnir sem henta öllum stærðum fyrirtækja. Mögulegt er að setja upp hlið í fjölmörgum útfærslum fyrir stærri sem smærri verslanir og fyrirtæki.
Vöruverndarmerki
Vöruverndarmiðar frá Securitas eru af hæstu gæðategund sem tryggir hámarksvirkni vöruverndarhliðanna.
Securitas býður örugg R50 hörð vöruverndarmerki. Merkin eru með klippivörn þannig að mun erfiðara er að klippa pinna úr merkjunum.
Merkin eru einnig með sterkt hald á pinnanum sem tryggir að ekki sé hægt að toga merkin í sundur. Opna þarf merkin með sérstökum segulopnara.
Merkin er hægt að fá með blekhylkjum sem springa ef reynt er að opna þau á rangan hátt.
Securitas býður einnig miða fyrir snyrtivörur ásamt miðum fyrir frysti- og kælivörur.
Hafðu samband við sérfræðinga okkar
í lausnum fyrir verslanir og þjónustufyrirtæki
Frímann Viðarsson
Viðskiptastjóri
Hafþór Theódórsson
Öryggisráðgjafi
Heiða Björk Júlíusdóttir
Viðskiptastjóri
Hafðu samband og fáðu ráðgjöf sérfræðinga okkar þér að kostnaðarlausu.