Umsjón öryggismála
Securitas hefur um árabil annast umsjón ákveðinna öryggismála eða öryggismálin í heild. Ávinningur fyrirtækja felst m.a. í því að þurfa ekki að vera með eigin öryggisstjóra og mennta þá og viðhalda þekkingu þeirra.
Hjá Securitas er teymi reyndra öryggisráðgjafa sem annast öryggismál viðskiptavina.
Í ÖRUGGUM HÖNDUM
UMSJÓN
Með því að fela Securitas umsjón með öryggisþáttum fyrirtækisins er tryggt að þeim þáttum sé framfylgt og þjónustan sé í höndum reyndra sérfræðinga sem stöðugt afla sér aukinnar þekkingar.