Securitas ber jafnlaunamerki Velferðarráðuneytisins með stolti. Við störfum saman sem sterk heild öll sem eitt.
Jafnlaunastefna Securitas
Tilgangur og markmið jafnlaunastefnu
Securitas starfar samkvæmt jafnlaunakerfi sem nær til alls starfsfólks félagsins og erjafnlaunastefnan launastefna Securitas. Forstjóri félagsins ber ábyrgð á að jafnlaunastjórnunarkerfið standist lög nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Við ákvörðun launa og annarra kjara skal þess gætt að kynjum sé ekki mismunað og skulu laun og önnur kjör ákveðin á sama hátt, óháð kyni. Starfsfólki, óháð kyni, skulu greidd jöfn laun og skulu þau njóta sömu kjara fyrir jafn verðmæt og sambærileg störf. Jafnlaunastjórnunarkerfið byggir á staðlinum ÍST 85 og áðurnefndum lögum og er ætlað að tryggja að ákvörðun í launamálum byggi á verðmæti starfa og feli ekki í sér kynbundinn launamun.
Ábyrgð á jafnlaunakerfi
Forstjóri ber ábyrgð á jafnlaunastjórnunarkerfi sé til staðar. Framkvæmdastjórn er leiðandi við þróun jafnlaunakerfisins og setur jafnlaunamarkmið fyrir hvert ár varðandi rekstur þess.
Skuldbinding
Með stefnu þessari skuldbindur félagið og stjórnendur Securitas sig til að:
Innleiða, skjalfesta og viðhalda vottuðu jafnlaunakerfi sem byggist á jafnlaunastaðlinum ÍST 85
Fylgja/hlíta viðeigandi lögum, reglum og öðrum kröfum sem í gildi eru á hverjum tíma og áhrif hafa á jafnlaunastjórnunarkerfið.
Framkvæma árlega launagreiningu þar sem borin eru saman sömu eða jafnverðmæt störf til að sýna fram á að kynbundinn launamunur sé í samræmi við jafnlaunamarkið félagsins