Í stórum hópi starfsmanna Securitas er að finna starfsmenn með áralanga og víðtæka reynslu á sviði öryggismála. Margir þessara starfsmanna eru meðal fremstu sérfræðinga á sínu sviði og hafa því verið fengnir til ráðgjafastarfa og til þess að sitja í ráðum og nefndum sem fjalla um hvers konar öryggismál í samfélaginu.
Securitas getur boðið ráðgjöf á ýmsum sviðum öryggismála án þess að því fylgi nokkur skuldbinding um að búnaður eða þjónusta sé keypt af fyrirtækinu.
Heildaröryggi í fyrirtækjum og stofnunum
Öryggisstefna, markmið, leiðir og innleiðing
Öryggishandbækur
Öryggisnámskeið
Fræðsla starfsfólks
Viðbragðsáætlanir
Ráðgjöf um uppsetningu rýma í öryggislegum tilgangi
Gerð áhættumats fyrir innra og ytra umhverfi vinnustaðar