Heilbrigðisþjónusta
Öryggislausnir fyrir sjúkrahús og fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu
Securitas býður fjölbreyttar lausnir fyrir fyrirtæki og stofnanir í heilbrigðisþjónustu.
Starfsfólk allra helstu heilbrigðisstofnana á Íslandi og annarra fyrirtækja á því heilbrigðissviði þekkir öryggið sem fylgir heilbrigðislausnum okkar.
Aukið öryggi í heilbrigðisþjónustu
Securitas býður fjölbreyttar lausnir fyrir heilbrigðisgeirann. Starfsfólk allra helstu heilbrigðisstofnana á Íslandi og annarra fyrirtækja á því sviði þekkir öryggið sem fylgir heilbrigðislausnum okkar.
Heilbrigðislausnir Securitas létta öll samskipti og tryggja fullkomið gagnaöryggi svo að þjónustuþegar hjúkrunar- og umönnunarheimila njóti betri þjónustu. Securitas auðveldar á hverjum degi störf í heilbrigðisþjónustu með sérþróuðum öryggislausnum
Sjúkrakallkerfi
Sjúkrakallkerfi geta leitt til verulegs vinnuhagræðis, öruggara vinnulags og rekjanleika en aðeins ef hugað er að því í upphafi. Megin tilgangur sjúkrakallkerfa (bjöllukerfa) er að tryggja að skjólstæðingur geti sent boð og fengið umsvifalaust viðbragð frá starfsfólki.
Öryggishnappar
Hjá Securitas er hægt velja úr fjölmörgum útgáfum af öryggis- og neyðarhnöppum.
Í boði eru bæði hnappar til að koma fyrir í ákveðnum rýmum og einnig hnappar sem skjólstæðingar geta borið á sér.
Myndavélaeftirlit
Þróun á myndavélakerfum er hröð og auknar kröfur eru stöðugt gerðar til þeirra verkefna sem þær eiga að leysa á sjúkrastofnunum.
Hjá Securitas starfa reynslumiklir ráðgjafar sem elska að takast á við áskoranir og byggja upp öflugar heildarlausnir með þínu fyrirtæki.
Rakning á starfsfólki og búnaði
Á sjúkrahúsum og heilbrigðisstofnunum getur skipt sköpum að vita hvar ákveðinn búnaður er niðurkominn og einnig hvar ákveðnir aðilar eru staddir í byggingum.
Með lausnum frá Securitas er unnt að rekja bæði staðsetningu á búnaði og starfsfólki
Auðkenni og vinnustaðaskilríki
Securitas býður fjölmargar leiðir til að auðkenna starfsfólk sjúkrahúsa og fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu, bæði með sjónrænum og rafrænum hætti. Hefðbundin starfsmannaskírteini sem jafnframt virka sem rafræn auðkenni gagnvart aðgangsstýringakerfum eru mjög vinsæl lausn
Þegar þörf er á auknu öryggi fyrir ákveðin svæði er gjarnan bætt við seinni auðkenningarleið í tveggja þátta auðkenningu.
Yfirseta með sjúklingi
Öryggisþjónusta á sjúkrastofnunum með vöktun allan sólarhringinn.
Sjúklingar á sjúkrastofnunum geta þurft vöktun og yfirsetu allan sólarhringinn eða hluta úr degi þegar færri eru á vakt hjá sjúkrastofnun. Securitas býður upp á slíka öryggisþjónustu.
Hafðu samband við sérfræðinga okkar
í lausnum fyrir heilbrigðisþjónustu
Oddsteinn Örn Björnsson
Viðskiptastjóri
Heiða Björk Júlíusdóttir
Viðskiptastjóri
Gestur Guðjónsson
Viðskiptastjóri
Hafðu samband og fáðu ráðgjöf sérfræðinga okkar þér að kostnaðarlausu.