Snertilaus hurðaopnun
Þægilegt og hreinlegt öryggi
Securitas býður öruggar og smekklegar snertilausar lausnir. Fallega hannaður búnaður, þunn plata úr ryðfríu stáli, rofi með LED-lýsingu og næmum og endingargóðum infrarauðum skynjara. Kjörinn kostur til að opna dyr og innganga með sjálfvirkri stýringu án snertingar eða handafls.
Snertilaus hurðaopnun hentar sérstaklega vel þar sem mikilvægt er að minnka smit- og sýklahættu, t.a.m. á sjúkrastofnunum, rannsóknarstofum, í eldhúsum, mötuneytum og öðrum stöðum þar sem matur er borinn fram. Snertilaus rofi er hreinlegri kostur og hentar einnig vel fyrir eldra fólk og fatlaða einstaklinga.
IR EXIT BÚNAÐUR FRÁ ELMDENE
Það skiptir ekki máli hversu stórt eða lítið fyrirtækið er. Ef það er þörf á að stýra aðgengi þá er Securitas með lausnina.
Sérfræðingar Securitas hafa áralanga reynslu af hönnun og uppsetningu aðgangskerfa af öllum stærðum og gerðum.
- Ryðfrítt stál
- LED-lýsing, tveir litir fyrir virka og óvirka stöðu
- Smekklegt útlit, fyrirferðalítið, létt og fallegt
- Innbyggð örstýring með sjálfvirk eiginprófun
- Skynjari hannaður með það í huga að verða ekki fyrir áhrifum frá öðrum infrarauðum búnaði
- Endingargóður infrarauður skynjari: 100.000 klst. / 1.000.000 aðgerðir.
- Endingargóður líftími
aukin þægindi og hreinlæti
Opnaðu án snertingar
Það er ekki bara á þeim tímum sem huga þarf að hreinlæti að snertilausar opnanir skipta máli.
Snertilaus opnun getur hentað bæði fyrir viðskiptavini og starfsfólk hvort sem fólk ber hluti í fanginu eða vill forðast snertingu af öðrum ástæðum.
Hafðu samband við sérfræðinga okkar í aðgangsstýringum
Oddsteinn Örn Björnsson
Viðskiptastjóri
Frímann Viðarsson
Viðskiptastjóri
Heiða Björk Júlíusdóttir
Viðskiptastjóri
Hafðu samband og fáðu ráðgjöf sérfræðinga okkar þér að kostnaðarlausu.