Lýsing fyrir öryggismyndavélar
Þannig að allt sjáist
Til að hámarka gæði myndeftirlitskerfa er gott að bæta lýsingu birtu til að ná hágæða myndum og auka fælingarmátt.
Raytec innrauð ljós eru sérhönnuð fyrir myndeftirlitskerfi. Ljósin lýsa upp umhverfið fyrir eftirlitsmyndavélarnar en eru ósýnileg mannsauganu. Ljósin bæta gæði myndavéla í myrkri og gera þeim kleift að ná betri myndum þrátt fyrir algjört myrkur. Með tilkomu háupplausna stafrænna myndavéla hefur þörfin fyrir sérhannaða lýsingu fyrir myndeftirlitskerfi aukist.
Raytec ljósin nýta sér LED tæknina og eru því einstaklega orkusparandi og hafa yfir 10 ára endingu.
Raytec býður bæði upp á innrauða lýsingu sem aðeins myndavélar sjá og hvíta lýsingu sem er sérhönnuð fyrir eftirlitsmyndavélar til að ná hámarksgæðum fyrir litmyndavélar, hvort sem er að degi eða nóttu.
Örugg lýsing á réttum stöðum
Raytec ljósin eru skemmdaverkavarin og hægt er að fá ljós sem draga allt að 1000 m, með stillanlegan geisla upp í 180°.
- LED lýsing
- Innrauð lýsing
- Hvít lýsing
- Hannað fyrir eftirlitsmyndavélar
- Notar lítið afl
- Skemmdaverkavarin
ALLT SEM ÞARF AÐ UPPLÝSA
FÆLINGARMÁTTUR OG SKÝRARI MYNDIR
Fáðu aðstoð sérfræðinga Securitas til að hanna og setja upp réttu lýsinguna umhverfis þitt fyrirtæki. Aukin fælingarmáttur þegar rökkva fer og veitir skýrari myndir öryggismyndavélar og auðveldara eftirlit öryggisvarða.
Hafðu samband við sérfræðinga okkar í myndeftirliti
Oddsteinn Örn Björnsson
Viðskiptastjóri
Gestur Guðjónsson
Viðskiptastjóri
Frímann Viðarsson
Viðskiptastjóri
Hafðu samband og fáðu ráðgjöf sérfræðinga okkar þér að kostnaðarlausu.