Slökkvitæki
Slökkvitæki er eitt mikilvægasta öryggistækið
Ómissandi þáttur í öryggismálum á öllum stöðum.
Mikilvægt er að velja slökkvitæki sem henta aðstæðum á hverjum stað og nokkuð algengt að nauðsynlegt sé að vera með fleiri en eina tegund slökkvitækja á völdum stöðum.
Securitas býður upp á úrval vandaðra og áreiðanlegra slökkvitækja:
Ólíkar gerðir
Að velja rétt slökkvitæki
Við val á slökkvitækjum og eða slökkvikerfum er mikilvægt að hafa í huga hverskonar eldur getur mögulega komið upp. Eldar eru flokkaðir í 5 flokka sem eru:
- A. Föst efni
- B. Eldfimir vökvar
- C. Gasefni
- D. Málmar
- F. Steikarfeiti
Slökkvitækin
Ólíkar gerðir
Duftslökkvitæki og léttvatnsslökkvitæki eru algengust
Til eru tvennskonar tæki til almennrar notkunar á heimilum og fyrirtækjum en það eru duftslökkvitæki og léttvatnstæki.
Helsti munur á þessum slökkvitækjum er að með dufttæki er úðað dufti yfir og á eldinn sem vinnur efnafræðilega á eldinum og skilur eftir sig hvítkorna duft. Með léttvatnstæki er vatni blandað íblöndunarefni sem eykur slökkvimiðlunina sprautað að rótum eldsins.
Slökkvitækjaþjónsta
Miklvægt að yfirfara öll slökkvitæki einu sinni á ári
Afar mikilvægt er að fara einu sinni á ári yfir öll slökkvitæki að öðrum kosti geta þau brugðist þegar á reynir.
Securitas veitir vandaða og faglega slökkvitækjaþjónustu þar sem þau eru prófuð og slökkvimiðlar endurnýjaðir.
Þú kemur með slökkvitækið til okkar og færð það til baka ný yfirfarið með nýrri áfyllingu í fullkomnu lagi.
Hafðu samband og fáðu ráðgjöf sérfræðinga okkar þér að kostnaðarlausu.