Securitas

5807000

Smelltu hér

Heimavörn

Að verja heimilið fyrir vá snýst ekki aðeins um efnislega hluti. Það snýst um það sem mestu máli skiptir, að þú og þín fjölskylda finnið til aukins öryggis á eigin heimili. Í ljósi þess mikilvægis að huga vel að öryggismálum heimilis þíns, hafðu samband við öryggisráðgjafa Securitas í síma 580 7000 og við aðstoðum þig við að finna þær lausnir sem best henta þér og þínum.

Fyrst langar okkur að benda á lausn sem gæti hentað þínu heimili. Heimavörn Securitas vaktar heimilið allan sólarhringinn, allan ársins hring. Heimavörnin er beintengd stjórnstöð Securitas þar sem velþjálfað starfsfólk grípur strax til viðbragða.

STJÓRNSTÖÐ SECURITAS
Starfsfólk stjórnstöðvar er á vakt allan sólarhringinn, allan ársins hring og hefur hlotið víðtæka þjálfun m.a. vegna þjónustu, tæknibúnaðar, skyndihjálpar, viðbragða við eldi og í fyrirbyggjandi vörnum og eftirliti. Þjálfun sína hefur starfsfólk m.a. fengið hjá slökkviliði, björgunarsveitum, lögreglu og Neyðarlínunni 112.

INNBROTAVIÐVÖRUN
Hreyfiskynjarar og skynjarar eru á hurðum og gluggum og senda boð um óæskilegan umgang til stjórnstöðvar og sírena á staðnum gerir strax viðvart.

BRUNAVÖRN
Reykskynjarar eru alltaf virkir og tengdir stjórnstöð Securitas.

ENGINN STOFNKOSTNAÐUR Á STAÐALBÚNAÐI
Þú greiðir engan stofnkostnað af staðalbúnaði þegar þú færð þér Heimavörn Securitas. Við komum með kerfið á staðinn og setjum það upp, hratt og örugglega. Þú greiðir mánaðarlegt þjónustugjald sem felur í sér fjarvöktun kerfisins, viðhald þess og útköll öryggisvarða, hvenær sólarhringsins sem er, alla daga ársins.

Staðalbúnaður Heimavarnar

  • 2 x hreyfiskynjarar
  • 1 x reykskynjari
  • 1 x hurðarnemi
  • Stjórnborð
  • Sírena
  • Stjórnstöð
  • Uppsetning

Hægt er að bæta við eftirfarandi aukabúnaði til viðbótar í Heimavörnina: vatnsskynjara, gasskynjara og fjarstýringu.

Öryggishnappar

Það er gott að geta dvalið heima hjá sér sem lengst ef aðstæður breytast vegna veikinda, slyss eða sökum aldurs. Enda kjósa það flestir ef kostur er. Þá er afar mikilvægt að finna til öryggis ef eitthvað kemur upp á og dregur ekki síður úr áhyggjum hjá aðstandendum að vita af sínum nánustu í öruggum höndum öllum stundum. Þar kemur öryggishnappur Securitas til sögunnar.

FULLKOMIÐ ÖRYGGI Í ÁSKRIFT

Greitt er vægt mánaðargjald fyrir öryggishnappinn, búnaðinn og þá þjónustu sem honum fylgir. Ef læknir metur þörf fyrir öryggishnappinn er hægt að sækja um styrk hjá Sjúkratryggingum Íslands til kaupa á þjónustunni og viðskiptavinur greiðir síðan einungis lágt mánaðargjald.

ÞÚ ÝTIR Á HNAPPINN OG FÆRÐ BEINT SAMBAND

Öryggishnappur Securitas er einfalt og fyrirferðalítið öryggistæki sem borið er um úlnliðinn eða hálsinn þannig að auðvelt er að ýta á hnappinn ef óhapp, veikindi eða slys ber að. Þá berast samstundis boð til stjórnstöðvar Securitas og beint talsamband opnast við sérþjálfað og þjónustulundað starfsfólk.


SVONA VIRKAR ÖRYGGISHNAPPURINN:


Ýttu á hnappinn sem þú getur bæði haft um háls eða á hendi. Boð berast til stjórnstöðvar Securitas og um leið birtast nauðsynlegar upplýsingar um þig og þínar aðstæður.


Talsamband kemst á milli þín og stjórnstöðvar. Öryggisvörður með lykil að húsnæði þínu kemur á staðinn ef þörf er á.


Sjúkrabíll og/eða læknir er sendur á vettvang ef þörf krefur og haft er samband við aðstandendur.

 

Hægt er að bera hnappinn um hálsinn eða á úlnlið.

neydarhnappur hals3neydarhnappur uln3

 

UMSÓKNARFERLI  TIL SJÚKRATRYGGINGA ÍSLANDS
A Heimilislæknir viðkomandi eða sérfræðingur fyllir út umsóknareyðublað um öryggishnapp.

B Læknirinn sér um að senda umsóknina til hjálpartækjamiðstöðvar Sjúkratrygginga Íslands. Svar berst til umsækjanda með lýsingu á niðurstöðu umsóknarinnar.

C Umsækjandi óskar eftir því við Sjúkratryggingar að fá öryggishnapp frá Securitas. Sjúkratryggingar senda beiðni til Securitas um uppsetningu á hnappi.

D Tæknimaður Securitas setur hnappinn upp, sér um fullnaðarfrágang tækis, kennslu, útskýringu útkallsferils sem og skráningu allra nauðsynlegra upplýsinga um hnappþegann og fær afhenta lykla.

E Að lokinni uppsetningu er hnappþegi með 24 tíma öryggisþjónustu frá Securitas.

Hafðu samband við öryggisráðgjafa Securitas í síma 580 7000 og kynntu þér öryggishnappinn. Þannig getur þú tryggt þér og þínum betra öryggi öllum stundum.

Sumarhúsavörn

Að verja sumarhúsið fyrir vá snýst ekki aðeins um efnislega hluti. Það snýst um það sem mestu máli skiptir, að þú og þín fjölskylda finnið til aukins öryggis vegna eigna sem erfitt getur verið að fylgjast með úr fjarlægð.

Í ljósi þess mikilvægis að huga vel að öryggismálum í sumarhúsi þínu, hafðu samband við öryggisráðgjafa Securitas í síma 580 7000 og við aðstoðum þig við að finna þær lausnir sem best henta þér og þínum.

Fyrst langar okkur að benda á lausn sem gæti hentað þínu sumarhúsi.

Sumarhúsavörn Securitas vaktar sumarhúsið allan sólarhringinn, allan ársins hring. Sumarhúsavörnin er beintengd stjórnstöð Securitas þar sem velþjálfað starfsfólk grípur strax til viðbragða.

Stjórnstöð Securitas

Starfsfólk stjórnstöðvar er á vakt allan sólarhringinn, allan ársins hring og hefur hlotið víðtæka þjálfun m.a. vegna  þjónustu, tæknibúnaðar, skyndihjálpar, viðbragða við eldi og í fyrirbyggjandi vörnum og eftirliti. Þjálfun sína hefur starfsfólk m.a. fengið hjá slökkviliði, björgunarsveitum, lögreglu og Neyðarlínunni 112.

Innbrotaviðvörun

Hreyfiskynjarar og skynjarar eru á hurðum og gluggum og senda boð um óæskilegan umgang til stjórnstöðvar og sírena á staðnum gerir strax viðvart.

Brunavörn

Reykskynjarar eru alltaf virkir og tengdir stjórnstöð Securitas.

Enginn stofnkostnaður á staðalbúnaði

Þú greiðir engan stofnkostnað af staðalbúnaði þegar þú færð þér Sumarhúsavörn Securitas. Við komum með kerfið á staðinn og setjum það upp, hratt og örugglega. Þú greiðir einungis mánaðarlegt þjónustugjald sem felur í sér fjarvöktun kerfisins og viðhald.

Staðalbúnaður Sumarhúsavarnar

2 x hreyfiskynjarar
1 x reykskynjari
1 x hurðarnemi
Stjórnborð
Sírena
Stjórnstöð
Uppsetning

Hægt er að bæta við eftirfarandi aukabúnaði til viðbótar í Sumarhúsavörnina: vatnsskynjara, gasskynjara, fjarstýringu, hitanema og rúðubrotsnema.

Slökkvitæki

Slökkvitæki eru nauðsynleg inn á hvert heimili. Ef eldur kemur upp er nauðsynlegt að geta brugðist snögglega við og gripið til nærliggjandi slökkvitækis. Með því er hægt að koma í veg fyrir tjón.

Það er afar mikilvægt að slökkvitækin séu á réttum stöðum á heimilinu og fjölskyldumeðlimir viti hvar þau eru. Ekki er þó nóg að eiga slökkvitækið, það þarf að yfirfara það árlega og býður Securitas þjónustu. Einnig er hægt að fá nánari upplýsingar um eldvarnir heimilins hjá öryggisráðgjafa Securitas í síma 580 7000 og við aðstoðum þig við að finna þær lausnir sem best henta þér og þínum.


SECURITAS MÆLIR MEÐ:

BÍLLINN
Handhægt 2 kg. duftslökkvitæki sem hentar vel í bílinn. Slekkur alla elda. Bílafesting fylgir.

BÍLSKÚRINN
6 kg. duftslökkvitæki sem hentar vel í bílskúrinn. Slekkur alla elda og ræður sérstaklega vel við gas- og olíuelda.

HEIMILIÐ
Vandað 6 kg. léttvatnsslökkvitæki sem gott er að hafa miðsvæðis á heimilinu. Slökkvitækið inniheldur hreinlegt slökkviefni og slekkur alla elda nema gaselda.

SUMARHÚSIÐ
6 kg. duftslökkvitæki sem nauðsynlegt er í sumarhúsið. Slökkvitækið ræður vel við alla elda.

GASGRILLIÐ
Handhægt 2 kg. duftslökkvitæki sem gott er að hafa við hlið gasgrillsins. Slekkur alla elda.

GASELDAVÉLIN
6 kg. duftslökkvitæki sem ræður sérstaklega vel við gaselda. Fyrir þá sem eru með gaseldavél á heimilinu er einnig nauðsynlegt að hafa gasskynjara.

ELDVARNARTEPPI
Nauðsynlegt er hafa eldvarnarteppi í eldhúsinu. Teppið skal hafa nálægt eldavélinni þar sem það hentar sérstaklega vel til þess að kæfa eld í pottum. Securitas mælir með eldvarnarteppi fyrir heimilið í stærðinni 100 x 100 cm.

SJÚKRAKASSI
Mikilvægt er að sjúkrakassi sé á hverju heimili. Hann verður að innihalda það nauðsynlegasta sem grípa þarf til ef slys ber að höndum.