Securitas á Facebook
Í dag ákvað Securitas að gera sig sýnilegt á Facebook í þeim tilgangi að koma með gagnleg og fræðandi skilaboð til viðskiptavina sinna sem og annarra sem hafa áhuga á öryggismálum heimila og fyrirtækja. Samhliða þessu hafa spunnist töluverðar umræður hjá okkur um öryggismál á samfélagsmiðlum og hvort notkun samfélagsmiðla geti haft áhrif á öryggi heimila. Við höfum því lagt í rannsóknarvinnu tengda þessu og langar til að deila því með ykkur, lesendur góðir.
Með þessu erum við ekki á nokkurn hátt að mæla á móti notkun samfélagsmiðla eins og Facebook, Twitter o.s.frv. enda eru slíkar síður bæði skemmtilegar og til nokkurs gagns. Við viljum bara vekja fólk til umhugsunar um þessi mál og hvetja til ábyrgrar notkunar.

Taktu ÖRYGGISPRÓFIÐ
Kveðja, HFV





