Reykvél í fréttum
Þar sem er reykur þarf ekki endilega að vera eldur. Í dag las ég áhugaverða frétt í Morgunblaðinu, sem hægt er að skoða hér á mbl.is, um sjoppueigandann í Efra-Breiðholti sem flutti sjálfur inn reykvél og setti upp til að verjast innbrotsþjófum.
Við hjá Securitas höfum einmitt boðið viðskiptavinum okkar reykvélar af þessu tagi. Þrátt fyrir að nokkrir hafi fjárfest í slíkum búnaði þá hafa viðbrögðin ekki verið sem skyldi í verslunarþjónustu. Þessar reykvélar eru nefnilega alveg ótrúlega sniðug tæki þótt þau komi ekki í veg fyrir innbrot frekar en önnur öryggiskerfi og þær hafa ekki fælingarmátt nema fyrir þá sem vita af þeim.
Þótt innbrotaviðvörun fari í gang þá tekur það lögregluna tíma að bregðast við og grípa þjófana. Í millitíðinni kemur reykvélin í veg fyrir að innbrotsþjófarnir hrifsi með sér verðmætan varning. Það tekur nokkrar sekúndur að fylla verslun af reyk sem er svo þéttur að óboðnir gestir rata ekki út, hvað þá að þeir hafi ráðrúm til að láta greipar sópa um verðmæti verslunarinnar.
Ég skil ekki að verslanir sem selja smávarning sem auðvelt er að grípa, eins og tölvu- og skartgripaverslanir, séu ekki allar með reykvarnarkerfi sem hluta af öryggisviðbúnaði sínum.
Hafþór Theodórsson, öryggisráðgjafi





