Myndavélar sem eru meira fyrir augað
Myndavélar eru ekki mitt sérsvið en starfs míns vegna hef ég gert nokkuð af því að kynna mér myndavélakerfi til notkunar við öryggiseftirlit. Maður spyr sig reyndar hvort myndeftirlitskerfi muni koma í stað öryggisvarða á einhverjum punkti. Munu hreyfiskynjarar, fjarmyndavöktun og upptökutæki leysa þá af hólmi? Þótt tæknin verði stöðugt fullkomnari þá er líklega betra að blanda saman tæknilegu og mennsku eftirliti. Eigum við ekki að segja að bland af þessu tvennu sé besta lausnin, öryggisins vegna?
Í morgun var ég viðstaddur kynningu frá Dallmeier fyrirtækinu sem kynnti fyrir okkur nýjungar á markaði fyrir eftirlitsmyndavélar. Ég verð að játa að ég var alveg gáttaður á því hversu flottar þær eru orðnar í útliti. Þú þarft ekki lengur að kaupa gráhvíta myndavél heldur geta þær litið út eins og grjót eða viður, þær fást í mismunandi málmum eða alskreyttar kristalsteinum frá Swarovski sem minna helst á demanta. Öryggismyndavélin þarf því ekki lengur að stinga í stúf við hönnunina eða glæsilegt innbú.
Í augum okkar sem vinnum við að gæta þess að verðmætum sé ekki stolið þá er það sérstaklega skemmtilegt að þjófavörnin geti verið dýrgripur í sjálfu sér.
Hér er linkur á bækling sem sýnir þetta svart á hvítu
Búi Bendtsen, sölustjóri





